Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Eftirfylgni IV

17. desember 2009 klukkan 15:39

Það glitraði stundum í miðbænum syðra þótt í næsta skrefi væri eymd, mikil eymd. Ég labbaði rosalega, sennilega samtals klukktíma eða meira tvo daga í röð. Kannski var eitthvað að mér en það var viss depurð í loftinu á röltinu. Frá útvarpshúsinu og niðrí bæ villtist ég, en það var að hluta til viljandi enda var ég ánægður með það hvað hlutirnir gerðust hratt loksins er þeir gerðust. Það gerðist margt þennan dag, 8. desember síðastliðinn. Á Café Paris las ég í Ingunni Snædal og beið eftir Birgi. Það var kvikmyndaleikstjóri á næsta borði - mjög frægur kvikmyndaleikstjóri (á Íslandi) sem söng „You´re so beautiful" við gelluna sem var að borða með honum. Þessi leikstjóri er með ágætis söngrödd. Svo kom Birgir og sýndi mér EP plötu með Tom Waits sem hann hafði verið að sækja á pósthúsið. Ég hafði líka farið á pósthúsið á Austurstræti með bréf til Dagrúnar. Ég tók ljósrit af því bréfi. Ætli það verði safn eftir 100 ár?

Það bergmálar vel í íbúð múrarans og þar æfði ég. Um kvöldið tróð ég upp á Sultukvöldi á Bakkusi og tók þrjú lög við ljóð Geirlaugs Magnússonar, „Hvílíkt undur!", „Hringekjan" og  „Gyðjan brosir" og endaði á „Andrés Önd". Las einnig nokkur ljóð, en lagði samt meiri áherslu á spileríið, enda fannst mér salurinn meira þesslags og ég líka í stuði til að nota tónlistina mína til að kynna ljóðabók.

Það er voða falleg bók og ljóðræn sem ég rakst á daginn eftir hjá Braga, Undir haustfjöllum (1960), ljóðaþýðingar eftir Helga Hálfdanarson. Að öðru leyti kompletaði ég næstum Tom Waits geisladiskasafnið mitt, en því miður á ég einungis eina vínyl plötu með honum, Rain Dogs (1985).
Fyrir ca. 10 árum eignaðist ég minn fyrsta Leonard Cohen disk, I´m Your Man (1988). Í þessari ferð fann ég vínyleintak af plötunni en það er gaman að geta þess að það er fyrsta vínylplatan sem ég eignast með Leonard Cohen.
Að öðru leyti var dvd útgáfa af The Rocky Horror Picture Show (1975) meðal þess sem var keypt og nokkrar Woody Allen myndir á dvd. Ég er ofboðslega hrifinn af Vicky Cristina Barcelona (2008).

Gísli Ţór Ólafsson
3 athugasemdir

Eftirfylgni III

03. desember 2009 klukkan 10:49
 

Í gærkvöldi flutti ég nokkur lög og las úr Skóhorninu  á bókmenntakvöldi. Gítarinn minn hljómar vel og fannst mér erfitt að syngja fyrra lagið vegna þess að það var ekki míkrófónn, en það tók mig smá stund að samstilla rödd og gítar við salinn. En miðað við það að hafa verið óþekktasta númerið þá held ég að þetta hafi verið allt í lagi.
Um 100 manns mættu.

Lögin sem ég flutti eru við ljóð Geirlaugs Magnússonar, „Orðin" úr Þrítengt (1996) og „Gyðjan brosir" úr N er aðeins bókstafur (2003). Nokkur ljóð las ég úr minni nýjustu bók en eitt úr Harmonikkublús (2006);

 

Ást á suðurpólnum

 

Hve oft
ætli mörgæsir
hafi séð þig
sveitta ofan á mér
er við nutum ásta
á suðurpólnum
í engu nema vettlingum

 

 

 

 

 

Ég íhuga það hversu fáránlegt það er að ég sé ekki fullmótaðri sem tónlistarmaður út á við og afhverju ég treð ekki oftar upp sem tónlistarmaður. Ég held að það sé að koma tími á meiri tónlist og gefa ljóðunum smá pásu í bili, a.m.k. hvað varðar ljóðabókaútgáfu.

 

Gísli Ţór Ólafsson
1 athugasemd

Ćvintýri

27. nóvember 2009 klukkan 10:07
 

Ég vil tala um menningu í mínum eigin heimabæ, eða viðburði. Í gærkvöldi fór ég á tónleika með Snorra Helgasyni, Sigríði Thorlacius og Heiðurspiltunum og Hjaltalín. Öll þessi atriði eru nýbúin að gefa út plötu og sú tilfinning streymdi frá þeim hvað það er dásamlegt að gefa út plötu og fá góðar viðtökur. Mér fannst það æðislegt og var ég vel heillaður af öllum þessum atriðum og einnig af þessu karakterríka fólki sem var á sviðinu. Ég fékk ljóðrænan innblástur. Í innblæstri þessum er metnaður að gera alltaf betur og betur og betur þótt mér finnist mín eigin útgefnu verk samt hafa verið nauðsynleg fyrir mig persónulega.
Þessir tónleikar voru á Mælifelli á Sauðárkróki. Fyrir viku fór ég á tónleika með Mugison og Björgvini Gíslasyni á sama stað og voru þeir ekki síðri þótt innblásturinn þar hafi samt verið meira tónlistarlega eðlis fyrir mig. Sérstök rómantík var á báðum þessum tónleikum og tilfinning fyrir ævintýralegum upplifunum. Sama má segja um uppsetningu FNV á Sódómu, en á þann söngleik fór ég á miðvikudagskvöldið síðastliðið. Það var jafn stórkostlegt og vikuna áður á generalprufunni. E.t.v. fer ég aftur á lokasýninguna í kvöld. Mér finnst að fólk eigi að fara oft á það sem gott er.

Gísli Ţór Ólafsson
1 athugasemd

Eftirfylgni II

25. nóvember 2009 klukkan 15:13

Eftir viku (þann 2. desember) er upplestur í Safnahúsinu. Á þriðjudagskvöldi vikuna þar á eftir er upplestur í Reykjavík. Ég mun lesa nokkur ljóð (minnst 4, mest 6) og taka nokkur lög og e.t.v. fleiri en tvö á upplestrinum syðra.
Fyrir viku fór ég generalprufu FNV á Sódómu. Ég var mjög hrifinn en á enn eftir að fara aftur.
Ég íhuga plötur. Sú fyrsta gæti verið kassagítarsplata með lögum eins og Andrés Önd og Gyðjan brosir og jafnvel Morguntár í kassagítarsútsetningu. Önnur plata myndi vera Bláar raddir, lög við ljóð Geirlaugs Magnússonar og sú þriðja Ýlfur. Á þeirri fjórðu myndi ég kannski taka Andrés og Gyðjuna með hljómsveit og hafa lög eins og Blindaður af ást og Ást á internetinu. Sú fjórða yrði semsagt poppuðust. En hvað hverju líður þá held ég samt að hyggilegast sé að fyrsta plata sé lágstemmd kassagítarsplata þar sem stemningin er aðal atriðið.

Gísli Ţór Ólafsson
1 athugasemd

Eftirfylgni

30. október 2009 klukkan 11:18

Næskomandi mánudagskvöld (2. nóvember) verður lesið úr Skóhorninu og tekið tvö lög í sal Safnahússins á Sauðákróki. Að öðru leyti eru sýningar á barnaleikritinu Rúa og Stúa.
Lítið hefur verið lesið en á náttstólnum eru samt nokkrar bækur og ber að nefna Heimsljós eftir Halldór Laxness og Milli trjánna eftir Gyrði Elíasson. Ég les í gömlum náttskóm.
Nýlega var farið á útgáfutónleika Bróður Svartúlfs á Mælifelli og platan keypt.
Að lokinni frumsýningu sótti á mig plötuhugmyndin Bláar raddir, lög mín við nokkur ljóð Geirlaugs Magnússonar úr ljóðabók hans Þrítengt.

Gísli Ţór Ólafsson
1 athugasemd

Skóhorniđ

14. september 2009 klukkan 12:55

Út er komin ljóðabókin Hér var eitt sinn annað skóhorn. Bókinni er skipt í fjóra kafla:
Ljóð í skóhorninu
Afgangsljóð
Ný ást
Ferðaljóð

Bókin er fjórða bók höfundar en sú fyrsta kom út árið 2006 og nefnist Harmonikkublús.
Óli Þór Ólafsson teiknaði kápumyndina.
Hægt er að nálgast bókina með því að senda póst á netfangið gislith@simnet.is

Gísli Ţór Ólafsson
Engin athugasemd

Ljóđabók 4

03. september 2009 klukkan 15:56
Hér var eitt sinn annað skóhorn kemur út mánudaginn 14. september.
Gísli Ţór Ólafsson
Engin athugasemd

Hér var eitt sinn annađ skóhorn er í prentsmiđjunni

30. ágúst 2009 klukkan 15:04
Hér var eitt sinn annað skóhorn er í prentsmiðjunni og er útgáfa áætluð 090909. Bókinni er skipt í fjóra kafla, Ljóð í skóhorninu, Afgangsljóð, Ný ástarljóð og Ferðaljóð. Eftirfarandi ljóð er annaðhvort frá lokaárum seinasta áratugar eða upphafsárum þess sem nú er að líða og um leið eitt elsta ljóð bókarinnar.

 

                                             Ást á undanhaldi

                                           Í baksýnisspeglunum
                                           sýndust þau smærri
                                           smærri en rotturnar í vallargróðrinum

                                           komdu hérna ástin mín
                                           varstu vön að segja
                                           en núna eygði nóttin aðeins von
                                           um hyldýpi flöskuhálsins
                                           sem var of lítill til að fara oní
                                           en mátulegur til að festast í

                                           bíð eftir næsta flóði

 Bókina má panta með því að senda fyrirspurn á netfangið gislith@simnet.is

Gísli Ţór Ólafsson
2 athugasemdir

Handrit samţykkt til prentunar

24. ágúst 2009 klukkan 15:55
 Handrit Skóhornsins er í prentsmiðjunni. Bókin er áætluð til útgáfu eftir ca. tvær vikur. Kápan prýðir teikningu eftir bróður minn, Óla Þór Ólafsson og bakgrunnur er hvítur, en bakhliðin er gráleit eins og smáskífan Upptaka stöðumæla sem er komin út en mun fylgja með bókinni fyrir þá sem vilja. Á smáskífunni eru upptökur af lögunum „Andrés Önd" (en texti lagsins er birtur í bókinni sem ljóð) og „Morguntár" en í bókinni er ljóð sem nefnist „Hún er ábyggilega ekki mín" og fjallar það um tilurð lagsins. Nýprent prentar en prentari prentsmiðjunnar hefur einnig prentað bækur eftir Gyrði Elíasson, Geirlaug Magnússon, Sigurlaug Elíasson og Óskar Árna Óskarsson.
Gísli Ţór Ólafsson
Engin athugasemd

Tónleikar í Bifröst 07.08.09

10. ágúst 2009 klukkan 10:07
  Það var mikið af bílum þannig að ég lagði bílnum hans pabba á bílastæði við safnið sem ég vinn í. Ég rölti svo í Bifröst. Það voru örfá sæti laus og ég settist aftast. Það var rafmögnuð eftirvænting í loftinu og jókst hún frekar en hitt þegar tilkynnt var að Bróðir Svartúlfs myndi hefja kvöldið. Stemningin var slík að í hvert sinn sem maður sást á sviði þá var klappað. Krafturinn var rosalegur. Mig minnir að það hafi verið í fimmta lagi að ég hálf gleymdi mér af því að mér fannst húsið vera svo lifandi og ég var að njóta augnabliksins þegar það kom þögn. Bassaleikarinn var nánast kominn með andlitið oní sviðsfjalirnar og Arnar Freyr öskraði bældu öskri sem virtist hárfínt og við hæfi og svo sprakk allt. Þetta var tónlistarupplifun og einhver sérstök tilfinning losunar. Ég varð agndofa, heillaður og hissa og viss um að ég hafi verið að upplifa eitthvað sérstakt á tónleikum, eitthvað sem ég hafði aldrei upplifað áður. Ýmsar hugsanir flögruðu, meðal annars að Bifröst væri komið með nýtt sögulegt gildi. Mikil fagnaðarlæti brutust út þegar þeir voru búnir með sitt og ég fór á klósettið á meðan Agent Fresco var að stilla upp. Góðir hljóðfæraleikarar í því bandi og flottir á sviðinu og söngvarinn fór á kostum í sviðsframkomu og tali milli laga. Bubbi á upphafsárunum kom upp í hugann en líka leikhúslegi andinn í húsinu. Það kom mér á óvart hversu vel ég fílaði þá og e.t.v. vegna þess að ég mun aldrei spila svona tónlist og þess vegna finnst mér þessi tvö bönd frábær.

Á meðan beðið var eftir Múgsefjun hitti ég Jón Bjarnason organista. Leikhúslega grínrokkið þeirra ætti að vera meira að mínu skapi þar sem það er í ætt við mína eigin tónlist, en einhvernveginn var ég heillaðri af þeim rokkböndum sem á undan voru. En þeir skiluðu sínu samt vel og kvöldið í heild mjög vel heppnað fyrir stútfullu húsi (um 100 manns).

Ég held að einu tónleikarnir sem mér dettur í hug til samanburðar hvað varðar tónlistarlega upplifun séu Sigurrós á Mælifelli fyrir tíu árum síðan og Megas og Senuþjófarnir á sama stað fyrr á þessu ári. Að öðru leyti held ég að þetta hafi verið ein sú mesta tónlistarupplifun sem ég hef upplifað síðan ég byrjaði að pæla í tónlist fyrir u.þ.b. 20 árum.

Á leiðinni að bílnum var mikil skáldastemning í Suðurgötunni

Gísli Ţór Ólafsson
Tónlist | 2 athugasemdir